
|
Nafn: Arnrún Sveina Kevinsdóttir
Gælunafn: Amma kallar mig Tófa, litlu frændsystkinin kalla mig Addú og sumir kalla mig Diddu, annars líkar mér bara best við að vera kölluð Arnrún
Hlutverk í GIG: Söngur
Hvað lengi með GIG: Veit ekki alveg en ekki frá byrjun allavega, kannski draga 3 til 4 ár frá aldri GIG
Lýstu þér í 5 orðum: Ótrúlega rosalega mikið stolt móðir
Uppáhalds biblíuvers: Filippíbréf 4:13, Allt megna ég fyrir hjálp Hans sem mig styrkan gjörir. |
Segðu frá fyrri og núverandi hlutverkum í Kirkjunni: Sá um miðhóp barnastarfsins í nokkur ár, tók svo við unglingastarfinu ásamt manninum mínum í 2 ár og var lofgjörðarleiðtogi
Hvaða tónlistarmanni myndir þú vilja standa á sviði með? Toby Mac og/eða Kirk Franklin
Á hvaða tónlist hlustarðu : Aðallega lofgjörðartónlist og eftirfarandi flytjendur eru í miklu uppáhaldi; Kirk Franklin, Delirious, Leeland, Blue Eyes Soul, Hillsongs, Jesus Culture, Third Day
Áhugamál : Motocross, fótbolti, ræktin, prjóna, FJÖLSKYLDAN
Uppáhalds TV eða bíó efni: Friends, Desperate Housewifes, Gossip girl og fleiri sápur J
Uppáhaldsútvarpsstöð: Lindin
Besta CD. (Fyrir utan eigið efni að sjálfsögðu) : Veit ekki alveg
Besta DVD ( sjá ofan): Friends
Besti matur: Hangikjöt og tilheyrandi - makkarónur, kartöflur, hvít sósa, rauðkál og grænar baunir
Neyðarlegasta uppákoman á sviði: Þegar unglingabandið var að syngja Freedom á þriðjudagssamkomu og gítarleikarinn var að spila eitthvað allt annað lag en við hin
Skemmtilegasta uppákoman á sviði: Veit ekki nákvæmlega.. alltaf gaman að vera með Jónsa á sviði, svo skemmtilegur og fjörugur karakter.. og það er alltaf gaman að lofa Guð og fá snertingu frá Honum
Eitthvað um þig sem fáir vita um: Er með fáránlega litla litlu tá - held hún hafi hætt að stækka þegar ég var 3 ára