Krossinn | lifandi kirkja - Ivar

GIG

Nafn:  Ívar Halldórsson              Gælunafn: Ívar

Hlutverk í GIG:  Píanó- og hljómborðsleikur,

 laga- og textasmíði, og söngur

Hvað lengi með GIG: 1 ár

Lýstu þér í 5 orðum: Prúður, stilltur, salla-rólegur,

hörku-duglegur og hund-leiðinlegur ;)

 

Hvaða tæki notarðu: Yamaha P200 píanó og ýmsa hljóðgervla

Uppáhalds biblíuvers: Jóh. 3:16

" Því svo elskaði Guð heiminn, að hann gaf son sinn eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki, heldur hafi eilíft líf."

Segðu frá fyrri og núverandi hlutverkum í Kirkjunni: núverandi: Tónlistarstjóri, unglingaleiðtogi - alltaf með tærnar í tónlistinni

Hvaða tónlistarmanni myndir þú vilja standa á sviði með?: Bono í U2 - veit ekki alveg af hverju samt

Á hvaða tónlist hlustarðu : Það væri fljótlegra að nefna þá tónlist sem ég hlusta ekki áJ

Áhugamál : Fjölskyldan, tónlist og að hugsa vel um líkamann - í þessari röð

Uppáhalds TV eða bíó efni:  Syrpur eins og 24, Prison Break og OZ klikka ekki

Uppáhaldsútvarpsstöð: Bylgjan

Besta CD. (Fyrir utan eigið efni að sjálfsögðu) : Það eru nú margir góðir - en segjum "Tambu" með Toto

Besta DVD ( sjá ofan): Af þeim sem ég hef svona nýlega séð mæli ég alla vega með "American Gangster" og "In Bruges" - eldri í uppáhaldi eru m.a. "The Negotiator" og "Face Off"

Besti matur: "Thanksgiving" kalkúnn og meðlæti  að hætti Bandaríkjamanna

Neyðarlegasta uppákoman á sviði: Þegar thaílenskur villigrís með loðhúfu stökk upp úr flyglinum á tónleikum - ertu ekki að grínast?

Skemmtilegasta uppákoman á sviði: Þær eru svo margar en alltaf skemmtilegt þegar bandið er að "grúva"  vel og gestir eru í grimmdarlega góðu stuði - það eru "perlu-mómentin"

Eitthvað um þig sem fáir vita um: Ég prjónaði einu sinni belti með lítilli tösku á af því mig langaði til þess...og var eitt sinn ógnað af lífvörðum Whitney Houston þegar ég ætlaði að heilsa upp á hana í hótel-lobbýi í Bandaríkjunum.

 

Krossinn - lifandi kirkja | Hlíðasmára 5-7 | 200 Kópavogi | Sími 554 3377 | Fax 554 4500 | krossinn@krossinn.is