
Nafn: Hanna Guðný Gælunafn: Hanna
Hlutverk í GIG: Söngur
Hvað lengi með GIG: Frá upphafi
Lýstu þér í 5 orðum: Sterk, óþolinmóð, ákveðin, skemmtileg, dugleg.
Uppáhalds biblíuvers: Þau eru svo mörg. En eitt vers sem ég elska og er með innskrifað í giftinga hringnum mínum. Það er Rutarbók kafli 1. vers 16-17.
" En Rut svaraði: "Leggðu eigi að mér um það að yfirgefa þig og hverfa aftur, en fara eigi með þér, því að hvert sem þú fer, þangað fer ég, og hvar sem þú náttar, þar nátta ég. Þitt fólk er mitt fólk og þinn guð er minn guð.Hvar sem þú deyr, þar dey ég, og þar vil ég vera grafin. Hvað sem Drottinn lætur fram við mig koma, þá skal dauðinn einn aðskilja mig og þig."
Segðu frá fyrri og núverandi hlutverkum í Kirkjunni: núverandi: Söngur þá og söngur núna.
Hvaða tónlistarmanni myndir þú vilja standa á sviði með?: ? Í kristna heiminum: Kirk Franklin, Hillsong, toby, natalie grant, third day og margir aðrir ef satt skal segja. En svo hefði ég áhuga að standa með U2, Whitney Huston, Alica Keys. og fl. Held sem sagt upp á marga tónlista menn J
Á hvaða tónlist hlustarðu : Ég er alæta á tónlist. Nema fíla ekki þunga rokk.
Áhugamál : Barnið mitt fyrst og fremst. Fjölskylda. Söngur. Vinir. Útlit. Margt margt fl.
Uppáhalds TV eða bíó efni: Desperat Houswifes algjörlega elska þá. Svo flesta þætti sem koma frá abc. Svo finnt mér gaman að The Doctors. Og nátturlega Friends.
Uppáhaldsútvarpsstöð: Jóla útvarspsstöðin J (hlusta þó bara á jóla tíma )
Besta CD. (Fyrir utan eigið efni að sjálfsögðu) : Það er nú varla hægt að velja einhvern einn. Gæti talið marga uppáhalds diska.
Besta DVD ( sjá ofan): Og sama svar hér. Ég skal melta þetta betur og svara síðar J
Besti matur: Jóla matur. Hamborgara hryggur með brúnuðum kartöflum, waldorfs salat og brúnni sósu. Og reyktur lax á undan. Og súkkulaði kaka í eftir rétt.. Eigum við að tala um fullkomin matseðil eða hvað?
Neyðarlegasta uppákoman á sviði: Jiiii ég verð að vera sammála Daney í þessu, þegar við sungum í brúðkaupi Mary did you know. Lagið var tekið tveimur eða fl. Tónhæðum fyrir ofan en normal. Og ég var í yfir rödd... HAHAH. Það var alveg svakalega fyndið. Í lok lagsins áttum við að halda út tóninum, 9 takta. Og ég náði ekki að syngja þennan tón svona lengi og hætti í miðjunni... Frekar mikið klúður. Svovar lagið búið og allir útí sal sátu starandi á okkur og við á hvort annað alveg WHAT WAS THAT????????
Skemmtilegasta uppákoman á sviði: Ég verð að segja að mér finnst rosalega gaman á herkvaðningum, þá fáum við skemmtilega gesti og færum góða og vel æfða tónlist sem maður er ánægður með. Og á tónleikunum sjálfum getur maður bara einbeitt sér að lofa Guð. Alltaf skemmtilegt. En svo er alveg geggjað að fara til ameríku. Guð hefur mætt í hvert einasta skipti.
Eitthvað um þig sem fáir vita um: Ég bít ekki.